Hlé fram yfir áramót

Ókei, þetta gengur ekki. Ég get engan veginn haldið þessu bloggi uppi í augnablikinu.

Ástæðan er rosa einföld: ofan á fyrsta árs doktorsnám er ég að kenna áfanga á fyrsta ári í háskólanum hérna. Fimm daga vikunnar heldur þetta tvennt mér uppteknum sirka ellefu tíma á dag, á laugardögum fara aðeins svona fjórir eða fimm tímar í vinnu, og á sunnudögum tek ég frí.

Þið megið alls ekki misskilja mig þannig að ég sé eitthvað annað en viðurstyggilega ánægður með þetta fyrirkomulag. Næstum það eina sem ég geri er að rúlla mér eins og svín upp úr stærðfræðidrullu allan liðlangan daginn, og ég er hamingjusamur sem eitt slíkt. En ég vil að sá litli frítími sem ég á fari í eitthvað annað en að hanga fyrir framan tölvuna og skrifa langar, ólesnar pælingar um hryllingsmyndir.

Ég losna við kennsluskylduna eftir áramót, svo þá geri ég ráð fyrir að geta byrjað aftur með reglulegt röfl. Áður en það gerist hlýt ég að geta mannað mig upp í að klára Cold Prey loksins, og kannski detta ein eða tvær aðrar inn á næstu þrem mánuðum.

Sjáumst í mesta skammdeginu.

Doublefail

Þið vitið hvað þeir segja: þú hefur ekki feilað fyrr en þú hefur tvöfaltfeilað. “Þeir” verandi fólk sem þýðir hluti beint yfir á íslensku án þess að færa hug að samhengi. Eða orðum sem eru í raun til á öðru hvoru tungumálinu.

En ég biðst innilega afsökunar á Cold Prey leysi þessarar viku. Ég lofa að hún komi inn um helgina.

Síðustu tíu, þrettán dagar hafa einkennst af því að vakna klukkan sex, hálf sjö, og fara að sofa í kringum tíu, með litlu öðru en kennslu og lestri þar á milli. Bæði mitt vikulega hryllingsmyndaröfl, sem og vandræðalegt daður við kvenmenn hefur þjáðst fyrir. Ég held og vona að næstu vikur og mánuðir verði öðruvísi, okkar allra vegna.

Nobattabattabatta

Jebb, við verðum seint á ferðinni þessa vikuna. Ég ætla að giska á að Cold Prey detti inn á sunnudagskvöldið. Ég var ótrúlega þreyttur í gær, að kenna til sex í dag, og er að fara á mjög nördalegt retreat to move forward á morgun og hinn.

Þannig: sunnudagur. Sennilega. En við verðum á réttum tíma á fimmtudaginn í næstu viku.

Næsta síða »


VARÚÐ

Söguþráður myndanna verður ræddur og einhver lykilatriði verða hugsanlega gefin upp. Þeir sem vilja vera öruggir um að myndirnar komi sér á óvart ættu að horfa á þær áður en þeir lesa umsagnirnar.

RSS veita síðunnar. Láttu hryllinginn skríða til þín.

Twitter

  • Vér minnumst orða Jay-Z, "Allow me to reintroduce myself," og keyrum í DEADGIRL: http://bit.ly/3c0PWn 1 month ago
  • M.a. á næsta misseri: Gerð/endurgerð: REC vs. Outbreak, Tale of two sisters vs. Uninvited, Funny games vs. ... umm... Funny games. 2 months ago
  • .... *geiiiisp*. Vér höfum vaknað úr sumardvala. Hryllingsmyndasöfnun er hafin. Bráðum, börnin góð. Bráðum. 2 months ago
  • Ef þið voruð að spá í hvaða rugl ég væri að láta út úr mér í staðinn fyrir hryllingsmyndaröflið þá er þetta svarið http://tinyurl.com/m7r3ly 4 months ago

Næstu myndir

verða teknar fyrir í september. Núna: Spring break! Wooo! *fer úr að ofan*